DUROL burstamotta · Burstagerðin
Burstamotta smíðuð eftir máli.
Sláðu inn málin, sjáðu mottuna í þrívídd og pantaðu. Hún heldur óhreinindunum úti: 70% minna berst inn.
- Smíðuð á um 2 dögum
- 5 ára ábyrgð
- Smíðuð í Garðabæ
0,80 m²
Vörunr. 140800 · 93.000 kr. á m²
Hannaðu mottuna
Sláðu inn málin og veldu uppsetningu. Verðið reiknast um leið.
Breiddin kemur fyrst, svo lengdin. Ef mottan fer í grifju gefurðu upp mál grifjunnar sjálfrar, mælt nákvæmlega.
Verð með vsk
74.400 kr.
60.000 kr. án vsk
0,80 m² × 93.000 kr.
- Meðalstærð er að jafnaði afgreidd á 2 dögum.
- Við mælum á höfuðborgarsvæðinu ef þú vilt.
- Spurningar? Hringdu í 480 0030.
100 × 80 cm · Grifja
74.400 kr.
- 70%
- minna af óhreinindum berst inn í húsið.
- 2 dagar
- er algengur afgreiðslutími á meðalstærð.
- 5 ár
- ábyrgð fylgir mottunni.
- Ryðfrítt
- Sterk plastefni og ryðfrír vír sem þola íslenska veðráttu.
Svona mælirðu.
Þrjú skref. Ef þú ert ekki viss komum við og mælum á höfuðborgarsvæðinu.
Mottan eða grifjan
Mældu mottuna sem á að skipta út, eða grifjuna sjálfa ef mottan fer í grifju. Athugaðu hvort grifjan sé hornrétt.
A × B
Gefðu upp breiddina (A) fyrst og síðan lengdina (B), í sentimetrum.
Grifja eða þröskuldur
Best er að grifjan sé 18 til 25 mm djúp. Annars fylgir álþröskuldur með 30° halla á annan eða báða enda.


Rúllaðu henni upp og sópaðu undan.
Mottuna má ryksuga, sápuþvo og háþrýstiþvo. Óhreinindin falla niður á milli prófílanna og það þarf aldrei að berja hana.



Burstamottur frá okkur í tæp 30 ár, meðal annars í anddyrum
- Háskólinn í Reykjavík
- Kringlan
- Smáralind
- Hótel Loftleiðir
- Hótel Hilton
Spurt og svarað
Hvernig panta ég DUROL mottu?
Gefðu upp mál mottunnar, eða mál grifjunnar ef hún fer í grifju. Breiddin (A) kemur fyrst og síðan lengdin (B), A x B. Mældu grifjuna mjög nákvæmlega og athugaðu hvort hún sé hornrétt.
Hvað á grifjan að vera djúp?
Best er að grifjan sé 18 til 25 mm á dýpt.
En ef engin grifja er til staðar?
Þá er hægt að fá álþröskuld með 30° halla á annan eða báða enda mottunnar.
Getið þið komið og mælt?
Já, á höfuðborgarsvæðinu er hægt að panta heimsókn þar sem við komum og mælum.
Hvað tekur langan tíma að fá mottu?
Mottan er smíðuð eftir máli og það tekur að jafnaði 2 daga að afgreiða meðalstærð.
Hvernig er mottan þrifin?
Það má rúlla henni upp og fjarlægja óhreinindin undan henni, og hún þolir ryksugun, sápuþvott og háþrýstiþvott.
Líka frá Burstagerðinni
Sérframleiðsla
Burstar smíðaðir eftir vélinni sem þeir fara í, fyrir fiskvinnslu og álver. Verð fer eftir magni.
Skoða dæmi og senda fyrirspurn


Rétta mottan fyrir anddyrið þitt.
Sláðu inn málin og pantaðu á netinu, eða hringdu og við aðstoðum við mál og uppsetningu.
