Sérframleiðsla · Burstagerðin
Bursti smíðaður fyrir vélina þína.
Við smíðum bursta eftir þörfum kaupandans, fyrir fiskvinnslu, álver og aðrar vélar. Hér eru nokkur dæmi úr framleiðslunni. Verð fer eftir magni.


Fyrir fiskvinnslu
Í beitningarvélar, blóðhreinsivélar og ísinn ofan af fiskikörunum, í landi og um borð.

Beitningaburstinn
Þennan bursta höfum við framleitt í beitningarvélar. Verð fer eftir magni.

Blóðhreinsibursti
Framleiddur til að setja í vél sem hreinsar blóð úr dálkasvæðinu í fiskinum. Burstinn er sérsniðinn eftir þörfum kaupandans og aðeins eitt dæmi um bursta sem við getum smíðað.

Blóðhreinsibursti um borð
Sérstakur bursti fyrir fiskvinnsluvél um borð í Guðmundi VE. Ekki lagervara, heldur sérframleiddur eftir óskum kaupandans hverju sinni.

Ísburstakeflið
Sérframleitt til að hreinsa ís ofan af fiskikörum. Keflið er 70 cm breitt og hárin eru úr 1,5 mm plasti.
Fyrir álverin
Burstar á vélar sem hreinsa skautgaffla og þéttingar við skautblásara.

Skautbursti
Dæmi um sérframleiddan bursta fyrir álverin. Hann er notaður á sérstakri vél sem hreinsar skautgaffla áður en þeir eru steyptir á ný kol.

Þétting í skautblásara
Notuð við skautblásara til að þétta sand og ryk sem annars fýkur út um allt. Lausnin er hönnuð af álverinu sjálfu en hárin eru sett í hjá okkur.
Svona gengur það fyrir sig.
Lýsing
Segðu okkur í hvaða vél burstinn fer. Mál, efni í hárum eða sýnishorn af gamla burstanum hjálpa.
Tilboð
Burstinn er sérsniðinn hverju sinni og verð fer eftir magni. Þú færð tilboð áður en nokkuð er smíðað.
Smíði
Burstinn er smíðaður hjá okkur í Garðabæ. Burstagerðin hefur smíðað bursta síðan 1930.
Sendu fyrirspurn
Sölumaður hefur samband. Þú getur líka hringt í 480 0030.
