DUROL BURSTAMOTTAN
DUROL-burstamottan heldur óhreinindum úti betur en nokkur önnur motta. Hún tryggir að 70% minna af óhreinindum berist inn í húsið.
- Minni óhreinindi í húsinu
- Tíma- og peningasparnaður fyrir húsráðendur
- Að berja úr mottunni er liðin tíð
- Að starfsfólk og viðskiptavinir hreinsa skó sína hvort sem þeir vilja það eða ekki!
Nánari lýsing
Duron-burstamottan er mjög endingargóð; smíðuð úr sterkum plastefnum, samsett með ryðfríum vír og þolir því íslenska veðráttu. Auðveld þrif vegna þess að hægt er að rúlla henni upp og fjarlægja óhreinindi undan henni. Þar að auki er mjög auðvelt að viðhalda fallegu útliti mottunnar með ryksugun, sápuþvotti eða háþrýstiþvotti.
Burstagerðin hefur framleitt burstamottur í hartnær 25 ár og má t.d. sjá mottur frá okkur í anddyrum í öllum helstu stofnunum og stórmörkuðum landsins, m.a. Háskóli Reykjavíkur, Kringlan, Smáralind, Hótel Loftleiðir, Hótel Hilton o.fl.
Burstamottan er smíðuð eftir máli og það tekur að jafnaði 2 daga að afgreiða meðalstærð af mottu.
Hvernig á að panta Durol-burstamottu:
- Hægt er að panta burstamottu í öllum stærðum. Það er mjög mikilvægt að gefa upp mál af mottunni (mottumál) eða grifjunni (stíft mál). Hægt er að panta heimsókn þar sem við komum og mælum (á höfuðborgarsvæðinu)
- Sé mottan ætluð í grifju þá þarf að gefa upp mál grifjunnar sjálfrar. Best er að grifjan sé 18-25mm á dýpt. Sé enginn grifja til staðar þá er hægt að fá álþröskuld með 30°halla á annan eða báða enda.
- Þegar mottan á að fara í grifju skal mæla grifjuna mjög nákvæmlega og athuga hvort hún sé hornrétt. Mál „A““ (breidd) skal gefa upp fyrst og síðan mál „B“ (lengd) = AxB.